2.flokkur Aftureldingar / Hvíti Riddarinn

SIGURVEGARAR

23.02.2012 09:08:52 / Bjarki Már

Fimmtudagur.......

 

Minnum á þrekhringinn í dag

Kvitta hér þegar þið eruð búnir

Æfing á morgun föstudag eins og venjulega

Ekki verða leikir gegn FH um helgina

Vonandi verða einhverjir af þessum frestuðu leikjum í byrjun næstu viku


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2012 08:27:13 / hanna

vörutalningin

munið vörutalninguna á laugardag í Bónus í Garðabæ
mæting kl 18.30
fyrstu menn ættu að klára um kl 22 síðustu um kl 23

Ingimar
Bragi S
Snorri
Valgeir
Magni
Elvar Ingi
Matti
Stebbi
Tobbi
Anton
Gunnar
Marinó
F Hall
Eiríkur
Trausti
Sindri
Darri
Palli
Kató
Örn
Arnór
Jón Fannar
Bragi Þ

kv undirbúningsnefnd

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2012 11:36:07 / Úlli

Þriðjudagur - Elding

Kommentið þegar þið eruð búnir. Flestir komnir með tæknina í lag en nokkrir sem þurfa að fínpússa aðeins. Gott að fara amk 2 saman svo hinn geti fylgst með líkamsbeitingunni og sagt ef bakið er ekki rétt o.s.frv. Þið eigið að vera komnir með áherslupunktana á hreint, amk þeir sem hafa mætt vel.

Þetta er 5. vikan af 6 í lotu 1. Eftir lotu 1 tekur við 1 vika í hvíld og þá fara fram mælingar og viðtöl og svo hefst lota 2 þann 13.mars.

Mikilvægt er að stunda þessar æfingar vel því ég byggi ofan á hverja lotu fyrir sig og þeir sem klára allar loturnar 3 samviskusamlega græða mest á þeim. Markmiðið er að auka vöðvaþol - styrk og sprengikraft en að sjálfsögðu ekki allt á sama tíma. Einnig eru margar þessara æfinga góð forvörn gegn meiðslum.

Fylgið hvíldinni og gerið þetta af krafti piltar. Og negla svo inn kommenti þessu til staðfestingar.

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.02.2012 22:54:20 / Úlli

Mánudagur til mæðu

Æfing 18:30 - 20:00

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2012 22:28:05 / hanna

vörutalning

sælir
Nú hafa 26 af 28 greitt staðfestingargjaldið í ferðina, búið er að greiða inn á gistinguna og það styttist í að það þurfi að greiða fyrir flugið, svo það er eins gott að bretta upp ermar og vera duglegir í fjáröflunum

laugardaginn 25. feb kl 18.15 er mæting í vörutalningu í Bónus í Garðabæ (þið talið ykkur saman til að geta samnýtt bíla)
þeir sem eru skráðir:
Ingimar
Bragi S
Snorri
Valgeir
Magni
Elvar Ingi
Matti
Stebbi
Tobbi
Anton
Gunnar
Marinó
F Hall
Eiríkur
Trausti
Sindri
Darri
Palli
Kató
Örn
Arnór
Jón Fannar
Bragi Þ

mikilvægt að þeir sem eru skráðir mæti
ef fleiri vilja skrá sig, endilega gera það í komment fyrir mánudagskvöld, því það þarf að bjóða fleiri flokkum ef við náum ekki þeim fjölda sem Bónus biðja um

ps
þið sjáið sjálfir um að klára að rukka fyrir maraþonið og splittið peningnum á ykkur þið sem söfnuðuð saman.  Þið þurfið ekki að skila til þjálfara
kv
undirbúningsnefnd

» 10 hafa sagt sína skoðun

17.02.2012 20:59:32 / Úlli

Laugardagur - 12:00 - 13:30

Mæta vel klæddir því það er spáð 6 stiga frosti og því á mörkunum að það sé æfingahæft.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2012 23:26:37 / Úlli

Föstudagur 18:30 - 20:00

Muna að kommenta á fimmtudagsfærsluna hér neðar þeir sem kláruðu þrekhringinn.

Vonandi allir búnir að græja staðfestingargjaldið (sjá neðar)

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2012 11:28:56 / Úlli

Fimmtudagur - Elding

Aðalréttur dagsins er þrekhringur.

Endilega kommentið og látið vita hvernig smakkaðist.

Sjá svo færslu hér neðar um staðfestingargjaldið!

» 8 hafa sagt sína skoðun

16.02.2012 10:01:11 / hanna

staðfestingargjaldið

munið að borga staðfestingargjaldið í dag:

315  26   52010
kt 5201002610
kr 15000

uundirbúningsnefnd

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2012 11:07:52 / Bjarki Már

Miðvikudagur.....

Æfingin í kvöld fer fram á sparkvellinum bakvið Varmá kl.18:30

3.fl karla er með frestaða leiki á vellinum

Þeir sem eru skráðir í dómgæslu fá frí á æfingu. Gríðarlega mikilvægt að þið takið ábyrgð á dómgæslunni og vonandi er Bragi Steinn búinn að finna einhvern sem getur tekið fyrir hann. 

Látið berast

Þjálfarar

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2012 11:04:54 / Úlli

Þriðjudagur - Elding

ATH. SJÁ FRÉTT AF FERÐINI NEÐAR (NAFNALISTI OG STAÐFESTINGARGJALD)


95 árgangur mætir 19:00
93+94 árgangur mætir 19:30

» 9 hafa sagt sína skoðun

14.02.2012 09:15:51 / Bjarki Már

Dómgæsla á morgun miðvikudag

Sælir

Dómarastjóri vill minna á eftirfarandi dómarastörf fyrir miðvikudaginn

 

Afturelding-Breiðablik A lið kl.18:30:

Dómari: Palli Aðstoð 1: Bragi St Aðstoð 2: Ægir

 

Afturelding-Breiðablik B lið kl.20:00

 

Dómari: Kalli Aðstoð 1: Axel Aðstoð 2: Marinó

Þeir sem ekki komast á þessum tíma þurfa að finna mann í sinn stað.

 

ÆFING 2.FL FER FRAM Á SPARKVELLINUM BAKVIÐ VARMÁ KL.18:30

ÞEIR SEM ERU SKRÁÐIR Í DÓMGÆSLUNA FÁ FRÍ Á ÆFINGUNNI


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.02.2012 22:38:50 / hanna

æfingaferðin - staðfestingagjald

ath sjá næstu fjáröflun neðst..

Í kvöld kom fram á fundi vegna ferðarinnar, að greiða þarf staðfestingagjald fyrir fimmtudagskvöld inn á reikning 315   26 52010  kt 5201002610 kr 15000

þegar allir hafa greitt verður hægt að senda nafnalista á flugfélagið á föstudaginn

skráðir í æfingaferðina eru:

Anton Ari

Arnór Snær

Birgir

Bragi Steinn

Bragi Þór

Darri

Eiríkur

Elvar Ingi

Elvar Kató

Erlingur

Fannar Freyr

Gnnar Andri

Ingimar

Jón Fannar

Karl

Magni

Marinó

Marteinn

Páll

Sindri Snær

Snorri

Stefán

Stefán Óli

Trausti

Valgeir

Þorfinnur

Ægir

Örn

vörutalning í Bónus: laugardaginn 25. febrúar kl 18.15 eins og venjulega er byrjað á pizzu og svo talið þar til ekkert er eftir ótalið, skráið í comment þeir sem ætla að mæta

þið megið endilega koma maraþon peningnum í lokuðu umslagi merkt ykkur á þjálfara

nefndin 


» 14 hafa sagt sína skoðun

13.02.2012 17:12:53 / hanna

fundur vegna ferðarinnar

minnum á fundinn vegna ferarinnar
boðaður í síðustu viku með tölvupósti 

í kvöld kl 20 á Varmá (í skólastofunni)

MJÖG MIKILVÆGT AÐ FULLTRÚI MÆTI FRÁ ÖLLUM SEM ERU SKRÁÐIR

undirbúningsnefnd

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2012 21:03:19 / Úlli

UMFA v Selfoss

Selfyssingar mættu í Mosfellsbæinn í dag og fram fóru tveir leikir, A og B lið. Byrjum á A.

Mörkin létu ekki á sér standa og létu heldur ekki bíða lengi eftir sér í viðureign A-liða UMFA og Selfosssss. Strax á 8. mínútu kemur kross af hægri vængnum og boltinn fer í gegnum teiginn og út að vinstra vítateigshorni og vinstri bakvörður Selfyssinga plasserar boltanum í samskeytin.

45 sekúndum síðar kemur Ægir niður og Elvar Ingi keyrir af stað og Ægir deliverar flottan bolta í hlaupaleið Elvars og eftir baráttu við varnarmenn Selfyssinga klárar Elvar færið vel og jafnar.

Selfyssingar voru meira með boltann í fyrri hálfleik og við vorum ekki nógu öruggir á boltanum en vorum þéttir og duglegir og gáfum fá færi á okkur. Selfyssingum tókst þó að skora annað mark fyrir leikhlé eftir klaufagang í teignum en mögulega var brotið á okkar manni í aðdraganda marksins en engu síður er aldrei vanmetið að hamra boltanum burt úr teignum.

Hálfleikstölur 1-2

Hart var barist í síðari hálfleik og við vorum áfram þéttir og duglegir og þrátt fyrir að hafa minna possession þá vorum við að loka ágætlega á þá og á köflum komu mjög góðir spilkaflar en kannski ekki skrýtið að menn hafi ekki náð neinum Barcelona-samba-takti enda fyrsti leikurinn í ca 2 mánuði.

Elvar Ingi jafnaði svo metin eftir að brotið hafði verið á Gunnari Andra í teignum en þar var um að ræða bakhrindingu eftir aukaspyrnu inn í teig. Elvar steig á punktinn og kláraði vel.

Maður hafði það alltaf á tilfinningunni að leikurinn myndi ekki enda 2-2 og reyndist sú tilfinning rétt enda kom sigurmarkið á 85. mínútu.

Siggi átti þá frábæran sprett um vænginn, beið í smástund og átti góðan kross fyrir og þar var enginn annar en títt nefndur Elvar Ingi mættur á fjær og skallaði/axlaði boltann í netið. 3-2

Selfyssingar gerðu hvað þeir gátu til að jafna metin en leiktíminn fjaraði út og okkar menn fögnuðu sigrinum vel.

Frammistaða liðsins var góð - sérstaklega varnarlega. Langflestir leikmenn voru harðduglegir og gerðu það sem lagt var upp með og hlupu af sér sokkana. Sóknarlega þurfum við enn að fínpússa aðeins en menn voru líka að þreifa hvor á öðrum með breyttum áherslum í dag.
Yfir heildina litið flottur leikur og við byggjum ofan á það jákvæða og lögum það neikvæða.

Maður leiksins: Elvar Ingi - þrenna.



Vængbrotið B-lið UMFA mætti skrýtnu B-liði Selfoss. Nokkrir byrjunarliðsmenn A-liðsins voru nefnilega varamenn í B-liði. Eins og gefur að skilja styrkti þetta B-lið Selfyssinga talsvert og við áttum erfitt uppdráttar. Við vorum mun minna með boltann og okkur gekk erfiðlega að skapa okkur færi. Hins vegar vörðumst við vel og má sérstaklega nefna vasklega framgöngu hafsentaparsins Kalla og Fannars Freys en nóg var að gera hjá þeim félögum í dag.

Hálfleikstölur voru 1-0 Selfyssingum í vil.

Nokkrir leikmenn UMFA í dag spiluðu sinn fyrsta leik í yfir 1 ár og ljóst að formið er ekki orðið 100% hjá einhverjum enda margir virkilega þreyttir í hálfleik.

Baráttan hélt áfram í síðari hálfleik og leikurinn fór að mestu fram á okkar eigin vallarhelming. Við vörðumst vel en Selfyssingar sóttu án afláts og sköpuðu sér mörg færi. Þeim tókst að skora 1 en hefðu í raun getað skorað fleiri.

Lokatölur 0-2 og er það vel sloppið miðað við gang leiksins ef maður á að vera hreinskilinn.

Menn leiksins: Kalli og Fannar Freyr - ómögulegt að gera upp á milli þeirra.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 95
Heimsóknir
Í dag:  194  Alls: 356912
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Dagatal
Gamalt blogg
Könnun
Man Utd-Liverpool?
Steindautt jafntefli
1 atkvæði

Rauðu djöflarnir vinna á heimavelli
14 atkvæði

Bellamy hetja Liverpool
5 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 20
Hvíti Riddarinn